Mörk, hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Sækja um dvöl Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hjúkrunarvistun

Til að eiga möguleika á hjúkrunarvistun á heimilinu þarf að hafa gilt vistunarmat.

Vistunarmat er faglegt einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega hjúkrun og vistun á hjúkrunarheimili. Þegar að því kemur að sækja um vist á hjúkrunarheimili þarf sá eða sú sem í hlut á eða einhver nákominn að fylla út umsókn um vistunarmat.

Sjá vefslóð Landlæknisembættisins um umsóknarferlið http://landlaeknir.is/pages/1142 þar er einnig hægt að nálgast umsóknareyðublöð. Einnig er hægt að nálgast allar upplýsingar um hvernig fyrstu skrefin eru þegar sækja á um dvöl á hjúkrunarheimili á Íslandi  á vefslóðinni  http://www.island.is/efri-arin/husnaedi/dvalarumsokn

Hvíldarinnlögn

Í Mörk eru 10 hvíldarrými og eru þau einkum ætluð einstaklingum yngri en 67 ára með heilabilun.

Hvíldarinnlögn getur varað allt að 8 vikum, allt eftir óskum og þörfum hvers og eins.

Heimilislæknar, starfsfólk heimahjúkrunar og forstöðumenn dagþjálfana sækja um hvíldarinnlagnir með því að fylla út þetta eyðublað.

Um hvíldarinnlagnir í Mörk sér Steinunn Agnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg