| Janúar - febrúar 2012 |
|
|
|
|
Kæru aðstandendur. Við höfum heilsað nýju ári og margt spennandi framundan í Mörk. Í mars vonumst við til að hægt sé að opna tengiganginn hér yfir í íbúðabyggingarnar við Suðurlandsbraut 58 - 62. Sá gangur mun eflaust nýtast heimilisfólki vel til gönguæfinga. Við minnum líka á að á Suðurlandsbraut 58 er gestaíbúð sem aðstandendur heimilisfólks í Mörk og íbúa í íbúðabyggingum geta leigt fyrir rúmlega 5.000 krónur á sólarhring. Íbúðin er aðallega hugsuð fyrir þá aðstandendur sem búa á landsbyggðinni eða í útlöndum og gera sér ferð í bæinn til að heimsækja fólkið sitt. Í íbúðinni eru uppábúin rúm fyrir allt að fimm manns og allt sem þarf að vera fyrir hendi í fullbúinni íbúð. Fyrirlestur um heilabilun Þann 19. janúar klukkan 20.00 verður Erla Grétarsdóttir sálfræðingur með fyrirlestur um heilabilun hér í salnum á fyrstu hæð Markar. Fyrirlesturinn er aðallega hugsaður fyrir aðstandendur en einnig fyrir þá heimilismenn sem hafa áhuga á að kynna sér nánar einkenni heilabilunar. Erla ræðir um þær persónuleikabreytingar sem stundum verða þegar fólk fær heilabilun og einnig um önnur einkenni og hvernig má bregðast við þeim. Erla hefur starfað með heilabiluðum og unnið að rannsóknum á þessu sviði. Aðstandendur heimilisfólks í Ási og á Grund mun einnig eiga þess kost á að mæta á fyrirlesturinn. Jólahaldið tókst vel Jólahaldið tókst vel og þó að skreytingar hafi verið mismunandi eftir heimilum var alls staðar hátíðlegt og fallega skreytt. Matreiðslumennirnir fengu mörg hrós fyrir frábæran hátíðarmatseðil og þær aðventu- og jólastundir sem voru víða um hús á aðventunni voru líka öllum til sóma. Aðstandendur hafa í auknum mæli tekið þátt í jólahlaðborðum eða aðventustundum á þeim heimilum sem þeirra fólk býr á og er það alveg frábært. Má bjóða þér á veitingahús? Matreiðslumennirnir í Mörk hafa nú ákveðið að bjóða heimilunum að panta á veitingahúsi. Þá er pantað borð á 1. hæðinni í Mörk með góðum fyrirvara. Eldhúsið sér um að láta dekka borð í hádeginu og heimilisfólkið kemur niður prúðbúið. Þá er kveikt á kertum og heimilisfólki þjónað til borðs. Þegar hafa einhver heimili prófað þessa nýbreytni kokkanna og láta vel af. Yfir 100 manns á fund FAAS FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma hélt fræðslufund fimmtudaginn 12. Janúar. Fundurinn var haldinn í Mörk – hjúkrunarheimili og var hann afar vel sóttur, yfir hundrað manns mættu. Eftir að Fanney Proppé Eiríksdóttir formaður hafði farið yfir fréttir úr starfi FAAS kynnti Ragnhildur G. Hjartardóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, heimilið og þá hugmyndafræði sem unnið er eftir í Mörk. Magnús Jóhannsson, sálfræðingur hélt erindi sem bar yfirskriftina Væg vitræn skerðin: hvar liggja mörkin milli eðlilegs minnistaps og byrjandi heilabilunar? Á eftir voru umræður og fyrirspurnir. Aðkoma aðstandenda er mikilvæg Á litlum heimilum eins og í Mörk skiptir aðkoma aðstandanda mjög miklu máli. Þegar aðstandendur koma í heimsókn veitir það tilbreytingu, svo ekki sé nú talað um ef aðstandendur taka stundum að sér í leiðinni að lesa upp smásögu eða ljóð, baka pönnukökur eða hella uppá. Aðstandendur komu í ríkum mæli að uppákomum á aðventu inni á heimilunum og þessi mynd hér fyrir ofan er tekin á fimmtu hæðinni þar sem aðstandendur buðu í jólahlaðborð í samvinnu við starfsfólk. Frábært framtak. Aðstandendur eru ávallt velkomnir og þeir eru eindregið hvattir til að taka þátt í heimilislífinu. Langi heimilisfólk til að bregða sér í leikhús eða á kaffihús væri frábært ef aðstandendur gætu tekið sig saman og skipulagt í samvinnu við starfsfólkið slíkar uppákomur fyrir heimilið þar sem þeirra aðstandendur búa. Guðsþjónusta í lok janúar Sunnudaginn 29. janúar klukkan 14.00 verður guðsþjónusta í kapellu Markar á 1. hæð hjúkrunarheimilisins. Prestur er sr. Sveinbjörn Bjarnason og boðið er til altarisgöngu. Kór Lágafellskirkju syngur. Aðstandendur sem tök hafa á að koma til messunnar eru beðnir um að aðstoða sitt fólk við að komast í og úr athöfn. Viðburðadagatal á heimasíðunni Þessa dagana er verið að setja viðburðadagatal inn á heimasíðu Markar, www.morkhjukrunarheimili.is. Þar stendur til að setja inn það sem er framundan á heimilinu hverju sinni eins og messur, tónleika, dansleiki, upplestur, hátíðahöld og svo framvegis. Nægir þá að smella á dagsetninguna til að fá nánari upplýsingar. Þorrablót Um þessar mundir er verið að súrsa í eldhúsi Markar og gera allt klárt fyrir glæsilegt þorrablót heimilisins sem verður haldið í hádeginu þann 19. janúar næstkomandi. Allur súrmatur er lagaður á staðnum. Borð verða dekkuð í sal heimilisins á 1. hæðinni og síðan koma heimilisfólk, íbúar á Suðurlandsbraut 58 - 62 og starfsfólk og borða saman en líklega verður salurinn þó tvísetinn. Markarbandið sér um undirleik á meðan borðað er. Eden heimili. Hvað er nú það? Eins og þið vitið fylgir hjúkrunarheimilið Mörk hugmyndafræði sem kennd er við Eden. Og hvað svo? Hvað þýðir Eden hugmyndafræði? Jú það er grundvallaratriði að heimilisfólk haldi reisn sinni og fái að taka sjálft ákvarðanir um daglegt líf sitt. Heimilisfólk býr i í Mörk og þangað kemur starfsfólk til að aðstoða það við að lifa sínu daglega lífi. Við leitumst við að útrýma einmanaleika, leiða og vanmáttarkennd með ýmsum hætti. Eden hjálparar svokallaðir eru börn, gæludýr og lifandi plöntur. Aðstandendur skipa veigamikinn sess á Eden heimili. Þeir eru alltaf velkomnir og mikil áhersla lögð á að þeir komi áfram að daglegu lífi foreldra sinna þó þeir séu fluttir á hjúkrunarheimili. Ef þið viljið fá frekari upplýsingar um hugmyndafræðina þá eru upplýsingar á www.morkhjukrunarheimili.is og má hafa samband við Guðbjörgu. R Guðmundsdóttir sem er með netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Þetta heita heimilin Heimilismenn fundu á sl. ári nöfn á heimilin ellefu í Mörk í samvinnu við starfsfólkið. Heimilin skarta nú fallegum nöfnum sem koma hér: 2. suður - Glaumbær 2 miðja - Miðbær 2 norður - Sælubær 3 suður - Sólheimar 3 miðja - Hugheimar 3 norður - Álfheimar 4 suður - Réttarholt 4 miðja - Álfholt 4 norður - Langholt 5 suður - Sjónarhóll 5 norður – Álfhóll |
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Sagan |
| Matseðill |
| Eden |
| Húsnæðið |
| Sækja um dvöl |
| Starfsumsókn |
| Gönguleiðir |