Mörk, hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Sept - okt 2011 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Sýning á verkum heimilisfólks

Nýlega var sett upp sýning á verkum heimilisfólks í Mörk í anddyri heimilisins. Sýningin vakti hrifningu enda skemmtilega sett upp og margir heimilismenn að sýna í fyrsta skipti. Þarna voru bæði myndverk, prjónaverk og ýmis verk bæði sem voru í vinnslu og tilbúin. Þetta er örugglega ekki í síðasta sinn sem sýning af þessu tagi verður sett upp í Mörk.

Heimilismannaráðsfundir

Heimilismannaráð er starfandi í Mörk en í því sitja heimilismenn og setja fram skoðanir sínar á ýmsu sem snertir heimilið. Þeir skeggræða matinn og aðstöðuna í húsinu. Eftir hvern fund skrifar fundarstjórnandinn Fjóla Haraldsdóttir djákni fundargerð og kemur henni til áleiðis til þeirra sem málið varðar. Reynt er að leita svara við öllum fyrirspurnum frá heimilismönnum, stundum er hægt að verða við óskum eða annars er reynt að útskýra hvernig ekki er hægt að verða við þeim ef það er raunin.


Ingjaldur heillar heimilisfólk uppúr skónum

Við auglýstum eftir páfagauk um daginn á eitt heimilið okkar í Mörk og viti menn, tveir aðstandendur buðu fram páfagauka með búri og tilheyrandi. Báðir eru nú komnir á heimili í Mörk. Ingjaldur er annar gauksinn og hann hefur svo sannarlega unnið hug og hjörtu heimilisfólksins. Ingjaldur hoppar á öxl eins og ekkert sé og er kátur alla daga. Hinn fuglinn er að venjast umhverfinu en báðir njóta þeir vinsælda og lífga upp á lífið og tilveruna. Hafi aðstandendur á sínum snærum gæludýrabúr fyrir hunda, fugla eða ketti tökum við fagnandi á móti slíkum búnaði og líka leikföngum handa gæludýrunum okkar. Í húsinu búa nú nokkrir páfagaukar, köttur og  hundar koma í húsið á hverjum degi með starfsfólki.


Flísabrot í mósaíkgerð eða annað föndurefni

 

Heimilisfólk er mikið að vinna í mósaíki og flísar í mósaíkið eru dýrar útúr búð. Ef þið eigið flísar aukalega í geymslu eða flísabrot þá er afar vel þegið að fá slíkt í vinnustofuna okkar. Að sama skapi kemur allt föndurefni sér vel ef til er aukalega af því.

Heldur  utan um heimsóknir

Fulltrúi frá síðunni www.heimsókn.is kom  nýlega á Grund og kynnti þjónustu sína. Vefsíðan býður upp á einfalt kerfi sem heldur utan um heimsóknir aðstandenda til vinar eða ættingja sem dvelur á dvalarheimili aldraðra eða hjúkrunarheimili. Kerfið veitir öllum aðstandendum sem áhuga hafa aðgang að dagatali þar sem þeir geta skráð væntanlegar heimsóknir sínar, símtöl eða viðburði. Þannig sjá allir á einfaldan hátt hvenær viðkomandi er heimsóttur og geta hagað sínum heimsóknum eftir því. Að auki er hægt að stilla kerfið þannig að það sendi tölvupóst til aðstandenda ef enginn hefur farið í heimsókn í x marga daga. Einnig hafa aðstandendur aðgang að dagbók þar sem hægt er að skrá færslu í kjölfar heimsóknar.

Einn ættingi getur tekið það að sér stofna dagatal (með því að smella á nýskráning á valstiku). Í framhaldi er sendur póstur með aðgangsorðum og geta ættingjar þá skráð sig inn í kerfið. Tilgangurinn er að einfalda allt skipulag í kringum heimsóknir og veita aðstandendum aukna hugarró á tímum sem oft geta verið fjölskyldum erfiðir. Vefurinn er öllum opinn og er rekinn með frjálsum framlögum.

Í bæjarferð með ömmu eða afa

Þegar heimilismaður hefur komið sér fyrir í Mörk er mikilvægt að koma í heimsókn og það er líka gott að fara með fólkið sitt út fyrir húsið. Stutt gönguferð um hverfið eða út í ísbúð nægir og þá er hægt að fá lánaðan hjólastól ef viðkomandi heimilismaður á ekki slíkt farartæki. Það veitir tilbreytingu að fara af bæ.  Það er líka gaman að  skreppa í Kringluna, fara á safn eða bjóða heimilismanninum  heim til fólksins síns eða skreppa á kaffihús. Hafi aðstandendur hug á að fara með ættingja sína í bæjarferð og þurfa að taka hjólastólabíl þá er startgjaldið 570 fyrir lítinn bíl en ef beðið er um stærri bíl er gjaldið 30% dýrara en að fara í venjulegum leigubíl. Ef farþegar eru fjórir eða færri aka þeir á sama gjaldi og aðrir litlir bílar.

Þægilegur fatnaður

Nú er farið að kólna og þá eru aðstandendur hvattir til að fara í gegnum fataskápinn með sínum ættingja hér í Mörk. Heimilisfólkið þarf að eiga hlýjan skjólfatnað en líka þægileg föt til að vera í inni  og nóg af sokkum og nærfatnaði. Það tekur oft tíma að fá þvottinn úr þvottahúsi og þá er gott að vera með vel til skiptanna.

Við minnum líka á að reglulega þarf að fara í gegnum snyrtivörur með fólkinu, passa að til sé það sem þarf s.s. raksápa og rakvélar, tannbursti, tannkrem, dagkrem, ilmsápur, varalitur eða annað  sem fólkið er vant að nota. 

 

Viðburðir

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg