| Júlí - ágúst 2011 |
|
|
|
|
Gönguferðir og tengigangur
Hjúkrunarheimilið Mörk fagnaði 1. árs afmæli sínu þann 16. ágúst síðastliðinn og af því tilefni var öllum heimilismönnum boðið í afmæli á 1. hæð heimilisins þar sem fagnað var með hnallþórum og tilheyrandi, blöðrum og söng. Gísli Páll Pálsson forstjóri Markar fór yfir fyrsta starfsárið og sagði að það hefði verið gaman að taka þátt í mótun starfseminnar á þessu unga heimili og óskaði því velfarnaðar um ókomna tíð.
Grasagarðurinn í göngufæri
Einn góðviðrisdaginn nýverið fóru nokkrir heimilismenn og starfsmenn í gönguferð í grasagarðinn og fengu sér hressingu á kaffihúsinu þar. Eins og sést á myndinni var þetta dásamleg ferð í alla staði. Því miður hefur starfsfólkið ekki alltaf tíma til að fara í gönguferðir með heimilismenn og því tilvalið fyrir aðstandendur að skreppa með sitt fólk þegar þeir koma í heimsókn. Það er auðsótt mál að fá lánaðan hjólastól ef viðkomandi heimilismaður á ekki sinn stól. Það eru ótal skemmtilegir staðir til að heimsækja sem eru í göngufæri, kaffihúsið í Glæsibæ, kaffihúsið í Grasagarðinum, Grasagarðurinn sjálfur, Húsdýragarðurinn, ísbúðin í Faxafeni, göngustígurinn sem leiðir mann yfir göngubrúna og upp í Gerðin. Við hvetjum aðstandendur til að bjóða fólkinu sínu í stuttar gönguferðir. Slíkt lyftir andanum og veitir tilbreytingu.
Áttu mósaíkflísar sem þú mátt missa?
Mósaíkgerð á auknum vinsældum að fagna meðal heimilisfólks í Mörk og mörg listaverkin sem nú hafa verið búin til í vinnustofunni okkar. Mósaíkflísar eru orðnar mjög dýrar og því biðjum við ykkur aðstandendur góðir ef þið eigið auka flísar í geymslunni eða flísabrot þá kæmi það sér mjög vel. Starfsfólkið getur tekið við flísunum og komið þeim áleiðis í vinnustofuna.
Nuddið vinsælt
Heimilismönnum stendur nú til boða að fara í nudd í Mörk en það er Britt Klasson sem nuddar og kemur í Mörk reglulega. Tímapantanir eru í verslun Markar á 1. hæð eða í síma er 560-1702.
Minningarkort í Mörk
Nú er hægt að nálgast minningarkort frá Mörk í verslun okkar á 1. hæðinni og sér afgreiðslufólkið um að fylla út kortið ef vill og setja í póst fyrir fólk.
Framkvæmdir við tengigang hafnar
Framkvæmdir við byggingu tengigangs milli íbúða-bygginga og hjúkrunar-heimilis í Mörk eru hafnar. Sjö verktökum var boðið að taka þátt í lokuðu útboði og bárust sex tilboð. Tilboð frá Atafli ehf var lægst og var því tekið. Arkitektar voru Yrki arkitektastofa og um burðarþol og lagnir sá Hnit ehf. Framkvæmdir kunna að valda ýmsum óþægindum varðandi hávaða og aðgengi og er fólk beðið að umbera þetta í þann skamma tíma sem þetta varir. Þegar tengigangurinn verður kominn mun heimilisfólk njóta góðs af þar sem hægt verður að stunda gönguæfingar í ganginum. Fyrsta áfanga við byggingu tengigangs á að ljúka þann 1. desember en þá á gönguleiðin að vera tilbúin innandyra. Verkinu á að vera lokið næsta sumar. Samhliða þessum framkvæmdum verður með vorinu farið í vinnu í garðinum og meðal annars stendur þá til að útbúa púttvöll, setja upp gróðurhús á lóðinni, búa til göngustíga og setja upp bekki. |
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Sagan |
| Matseðill |
| Eden |
| Húsnæðið |
| Sækja um dvöl |
| Starfsumsókn |
| Gönguleiðir |