|

Síðastliðinn föstudag, á bóndadaginn, var þorragleði í Mörk. Öll borð í sal á fyrstu hæð voru dekkuð hvítum dúkum og kertaljósum og síðan var heimilisfólki og starfsfólki boðið niður í þorramat. Íbúar á Suðurlandsbraut 58 - 62 komu líka í þorramatinn. Undir borðhaldinu lék Markarbandið. Þá var dóttir Margrétar Björnsdóttur heimiliskonu, Soffía Sigurðardóttir, með þjóðlegan leikþátt sem hún sýndi með regulegu millibili meðan borðað var. Þegar fólk var búið að gæða sér á þessum ljúffengu kræsingum ákváðu einhverjir að nýta tækifærið og stíga dans við dunandi harmonikkutóna Markarbandsins.
|
|
Nánar...
|
|
Fram hefur komið í fréttum að Mörk hafi verið eitt þeirra fyrirtækja sem keypti iðnaðarsalt af Ölgerðinni. Mörk keypti í nóvember sl. einn poka af umræddu salti en það hefur fram að þessu ekki verið notað í matargerð á heimilinu. Saltinu verður skilað.
|
|

Það þarf oft ekki mikið til að lífga upp á hversdaginn. Einn morgun fyrir nokkrum dögum ákvað Kristín Stefánsdóttir iðjuþjálfi Markar að það væri tilvalið að skreppa út í snjóslag. Hún virkjaði heimilisfólk með sér og það er ekki að sökum að spyrja...snjóboltarnir bræddu þá sem tóku þátt í stríðinu og bros læddist fram á varir...
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 17 |