Framkvæmdir ganga vel við þjónustuíbúðirnar í Mörk, tengigangurinn milli húsanna og hjúkrunarheimilisins er farinn að taka á sig endanlega mynd og þessa dagana er verið að malbika göngustíga á lóð. Það er gaman að sjá hvernig lóðin er að formast eftir þessum stígum og stutt er í að púttvöllur verði gerður. Búið er að steypa botn í sundlaugina þar sem gert er ráð fyrir glæsilegri heilsulind og frágangur innanhúss í tengigangi stendur yfir.
Um síðustu helgi var birt viðtal við Gísla Pál Pálsson, forstjóra í Mörk, um þjónustuíbúðirnar sem Grund festi kaup á og eru nú næstum allar komnar í útleigu og þá þjónustu sem verður boðið upp á í náinni framtíð. Með góðfúslegu leyfi Morgunblaðsins fengum við leyfi til að birta viðtalið hér á síðu Markarinnar.