Mörkin, þjónustuíbúðir

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Iðnaðarsalt hefur ekki verið notað í matargerð í Mörk
Fram hefur komið í fréttum að Mörk hafi verið eitt þeirra fyrirtækja sem keypti iðnaðarsalt af Ölgerðinni. Mörk keypti í nóvember sl. einn poka af umræddu salti en það hefur fram að þessu ekki verið notað í matargerð á heimilinu. Saltinu verður skilað.
 
Þorragleði
Föstudaginn 20. janúar verður þorragleði í Mörk frá klukkan 11 - 14.  Borð svigna undan þorramat að hætti hússins. Markarbandið leikur undir borðhaldinu.
 
Tai Chi námskeið og lífssögugerð

Tvennskonar námskeið standa nú íbúum á Suðurlandsbraut 58 - 62 til boða. Annað námskeiðið snýr að lífssögugerð en hitt snýr að Tai Chi jafnvægisæfingum. Allar nánari upplýsingar veittar í versluninni á 1. hæð hjúkrunarheimilisins í Mörk.

 
Fleiri greinar...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 7