|
Laugardagur, 21. janúar 2012 09:47 |
|

Grund gerði á síðasta ári samning við Flóamennt um tilraunaverkefnið Fræðslustjóri að láni. Flóamennt kom sem þjálfari og sérfræðingur í mannauðsstjórnun að vinnu við verkefnið. Gerð var þarfagreining á fræðsluþörf innan Grundar, Markar og Áss og fengnar tillögur og útfærsla á leiðum og aðgerðum vegna símenntunaráætlunar um þjálfun og menntun starfsmanna. Sigríður Sigurðardóttir fræðslu-sýkingavarna- og gæðastjóri heimilanna var tengiliðurinn af hálfu Grundar, Markar og Áss. Verkefnið var unnið á tímabilinu október til desember 2011. |
|
|
Miðvikudagur, 18. janúar 2012 11:56 |
|

Það var hátíðleg stemmning á Grund í dag þegar Grundarkórinn gekk um húsið og söng minni karla og kvenna í tilefni bóndadagsins. Í kórnum eru bæði heimilismenn og starfsmenn og svo taka allir sem ekki eru í kórnum líka undir. Á eftir gæddu heimilismenn og starfsmenn sér á þorramat sem fólkið í eldhúsinu hefur verið að undirbúa um hríð.
|
|
Nánar...
|
|
Hnetusmjörssamlokur og Elvis Presley á Grund |
|
Þriðjudagur, 17. janúar 2012 11:14 |
|

Presley lögin It is now or never og Love me tender ómuðu um Grund í morgun en morgunstund heimilisins var að þessu sinni tileinkuð hinum eina sanna Elvis Presley. Á níunda tug heimilismanna hlustuðu á Örnólf Thorlacius segja frá æviferli popparans. Eftir að hafa verið í leikfimi hjá Alberto Borges mætti Dýri Guðmundsson með gítarinn og spilaði undir á meðan Heiðrún Guðvarðardóttir söng þekktar Elvis perlur. Heimilismenn mundu svo sannarlega textana og tóku undir með þeim Heiðrúnu og Dýra. Matreiðslumaður heimilisins, Jóhann Sveinsson, hafði lagst í rannsóknarvinnu og fundið uppskriftina að uppáhaldssamloku goðsins, samloku með hnetusmjöri, bönunum og hunangi eða sultu. Slíkar samlokur voru smurðar í morgun og svo steiktar áður en þær voru bornar fram í kaffihléi stundarinnar. Myndasmiður var auðvitað mættur í morgunstundina.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 102 |