|
Föstudagur, 03. febrúar 2012 12:45 |
|

Það er óhætt að segja að ungir sem aldnir hafi hvatt okkar menn áfram á Evrópumóti í handbolta sem nú er nýlokið. Þessar myndir voru teknar á hjúkrunardeildinni en þar var heimilisfólkið saman komið til að hvetja áfram íslensku drengina.
|
|
Nánar...
|
|
|
Mánudagur, 23. janúar 2012 11:26 |
|

Á bóndadaginn var þorranum fagnað í Ási. Samkvæmt þjóðsögum Jóns Árnasonar var það skylda bænda að fagna þorra með því að fara fyrstir allra á bænum á fætur. Þá áttu þeir m.a. að fara út skyrtunni einni og vera berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina. Ýmislegt annað var tilneft svo þeir gætu boðið þorrann velkominn Hér í Ási sást ekki til neins léttklædds bónda að striplast á milli húsa. Í staðinn var þorranum hér var fagnað með því að halda þorrablót fyrir heimilismenn. Mikil tilhlökkun er hjá heimilsmönnum þegar þessi dagur nálgast því þá gefst þeim tækifæri til að bragða á þjóðlegum mat svo sem hrútspungum, sviðasultu og hákarli.
|
|
Nánar...
|
|
Laugardagur, 21. janúar 2012 12:38 |
|

Nú á dögunum var kynnt niðurstaða verkefnisins „Fræðslustjóri að láni“. Verkefnið var unnið á tímabilinu október til desember 2011 og að því kom fræðslustjóri Áss, Grundar, Markar sem og Flóamennt. Markmið verkefnisins var að auka hæfni starfmanna og m.a. að koma með tillögur um fræðsluáætlun fyrir heimilið. Gerð var þarfagreining á fræðsluþörf innan Áss og fengnar tillögur og útfærsla á leiðum og aðgerðum vegna símenntunaráætlunar um þjálfun og menntun starfsmanna. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 37 |